FORSÍÐA
STJÓRNSÝSLA
ÞJÓNUSTA
UMHVERFI OG SKIPULAG
MANNLÍF OG MENNING
EYÐUBLÖÐ
Ýmsar myndir
Skip Navigation LinksForsíða > Mannlíf og menning > Hestamannafélagið Sóti
Prenta

 

VELKOMINN Á VEF HESTAMANNAFÉLAGSINS SÓTA

 

5. desember 2011

NÝ HEIMASÍÐA

Sóti hefur opnað nýja heimasíðu

www.soti.is

meira...
30. október 2011

GÍRUGIR SÓTAKRAKKAR Í GÓKART

12 krakkar á aldrinum 6-16 ára skemmtu sér vel síðastliðinn föstudag.  Farið var með rútu frá félagsheimilinu kl. 17:30 á gókart brautina í Garðabæ þar sem allt iðaði af spenningi að prófa kappaskursbílana.

meira...
20. október 2011

UPPSKERUHÁTÍÐ ÆSKUNNAR

Nú er komið að uppskeruhátið æskunnar þ.e.a.s pollar, börn, unglingar og ungmenni í Sóta í boði Sóta (kostar ekkert fyrir æskuna) Hátíðin fer fram föstudaginn 28. október.  Lagt af stað frá félagshúsi kl. 17:30 og komið til baka um kl. 20-20:30.  

 

meira...
20. október 2011

NEFNDARGLEÐI

Nefndargleði 2011 verður haldin á Fálkastíg 2, laugardaginn 5. nóv en þá býður stjórnin öllum nefndarmönnum, eða þeim sem hafa starfað fyrir félagið á einhvern hátt, í mat og gleði, með þökk fyrir vel unnin störf á árinu :-)

meira...
20. október 2011

AÐALFUNDUR 2011

Aðalfundur Sóta verður haldinn miðvikudaginn 16.nóvember í félagshúsi kl. 20:00.  Dagskrá auglýst síðar. Félagar eru hvattir til að bjóða sig fram í nefndir félagsins á soti@internet.is  Það eru félagarnir sem skapa félagið.

meira...
27. júní 2011

ALDREI GENGIÐ EINS VEL HJÁ YNGRI DEILDUM SÓTA Á LM

Alexandra Ýr Kolbeins á Lyftingu gerði sér lítið fyrir og komst áfram upp í milliriðil með einkunnina 8,31 og 21.sætið.  Aldrei áður hefur Sótafélagi komist upp í milliriðill í yngri flokkum. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Alexöndru og við óskum henni góðs gengis í milliriðlinum á miðvikudaginn. 

meira...

 

VELKOMINN Á VEF HESTAMANNAFÉLAGSINS SÓTA

 

 

 
 
23.april 2010

SÓTAFÉLAGI Í 2.SÆTI Í STIGAKEPPNI HJÁ SÖRLA

Alexandra Ýr Kolbeins keppti á þriðja og síðasta Landsbankamótinu í dag og gerði sér lítið fyrir og hafnaði í öðru sæti í heildarstigakeppninni í unglingaflokki.  Alexandra keppti á Lyftingu frá Skrúð og stóðu þær stöllur efstar eftir forkeppni í morgun en höfnuðu síðan í 4.sæti í úrslitum.  Heildarstigafjöldi endaði þannig;

Unglingar:
1. Brynja Kristinsdóttir 30 stig
2. Alexandra Ýr Jóhannsdóttir 18 stig
3. Ásta Björnsdóttir 16 stig
4. Viktor Sævarsson 15 stig
5. Hafdís Arna Sigurðardóttir 12 stig

 
23.april 2010

REIÐKENNSLA HJÁ KAREN Í FYRRAMÁLIÐ

Fyrir alla, konur og kalla, kl. 11:00 í Andvarahöll.

 
21.april 2010

RATLEIKNUM FRESTAÐ TIL UPPSTIGNINGARDAGS 13.MAÍ

Vegna óviðráðanlegra orsaka neyðist ferða og skemmtinefnd til þess að fresta hinum árlega sumardagsins fyrsta ratleik fram á uppstigningardag 13.maí.   Vonandi verður bara enn meiri þáttaka með hækkandi sól og blóm í haga - búið er að skipuleggja leikinn og verður hann afar skemmtilegur og með örlitíð nýju sniði.

 

20.april 2010

ÞRIÐJU OG SÍÐUSTU VETRARLEIKARNIR

Verða haldnir á morgun, síðasta vetrardag, á velli félagsins kl. 18:30.  Skráning í félagshúsi frá kl. 17:15.  Keppt í tölti og þrígangi í sömu flokkum og verið hefur.  Sjá tölvupóst frá mótanefnd.   Bjórkvöld í félagsheimilinu á eftir!   Sjáumst hress með ungmennafélagsandann í brjósti

 
18.apríl 2010

10 FULLORÐNIR OG EITT BARN

Áð var við Guðmundarlund
Fóru saman í fjölskyldu-kerruferð í gær.  Hrossafjöldinn passaði í einn hestaflutningabíl og tvær kerrur. Riðin var hringur frá Andvara - um Heimsenda, að Elliðavatni, upp heiðina, framhjá Guðmundarlundi og endað aftur Andvara þar sem Eyrún beið í félagsheimili Andvara með heitt kakó og brauð með salati.   Veðrið var gott, hrossin enn betri og reiðvegir ágætir.  Vonandi mæta fleiri í næstu kerruferð, nýjir félagar sem gamlir, Alftnesingar og aðrir.  (myndir í myndaalbúmi)  

 

 

13.april 2010

KERRUFERÐ

Hin árlega kerruferð verður farin n.k. laugardag 17.april. 

Lagt verður að stað stundvíslega frá Félagshúsinu kl. 13:00  - sameinast verður í kerrur – gott að vera komin kl. 12:30.

Riðin verður eins hesta hringur frá Andvara og drukkið kaffi þar á eftir.  Ath að þetta er ferð fyrir alla fjölskyldumeðlimi og miðast ferðahraði við það. Farið verður í leiki í áningu J

Sjáumst hress  - ekkert stress 

Vonumst til að sjá alla Sótafélaga – staðsetta á Álftanesi sem og annars staðar J

Kveðja / Ferða- og skemmtinefnd

 

13.apríl 2010

FRÁBÆRT NÁMSKEIÐ HJÁ KAREN

Elfur, Steinunn, Karen, Elísabet, Helga Dögg og Siddý

Það voru 5 konur sem mættu í reiðtímann hjá Karen á sunnudagsmorgninum.  Gerðar voru æfingar s.s. stöðvunaræfingar, að bakka, sveigja til hægri og vinstri, allt saman liðkandi fyrir hestinn.  Allir hestarnir bættu getu sína og kjellurnar fóru alsælar heim!  Stefnt er á að bjóða uppá samsvarandi námskeið fyrir KARLA þ. 18.april og síðan aftur f. konur 27.april og að lokum f. karla 2.maí. 

 

 

 
09.apríl 2010

FRÆÐSLUNEFND AUGLÝSIR

Fræðslunefnd býður uppá tíma fyrir KONUR (22 ára og eldri) í Andvarahöllinni á n.k. sunnunudag 11 april kl. 11-12:00.  Kennari verður hún Karen okkar sem ætlar að kenna konum nokkur trix við að gera hrossin betri og ásetuna enn glæsilegri.

 

Hittumst í hesthúsunum kl.10:30 og sameinumst í kerrur

 

Sjáumst hressar og höfum bæði gagn og gaman af.

Kveðja

Fræðslunefnd

 
07.april 2010

ÞRIÐJU OG SÍÐUSTU VETRARLEIKARNIR Á LAUGARDAGINN 10.APRIL

Þá munu úrslit út stigakeppninni ráðast - keppnin er æsispennandi!  Sjá auglýsingu fyrir mótið hér.....

 
 
06.april 2010

FÉLAGSFUNDUR UM LANDSMÓT 2010

Verður haldin í félagsheimilinu á morgun, miðvikudag 07.apríl, kl. 20:30.  Jóna Fanney Friðriksdóttir mun koma og kynna LM10 og svara spurningum.  Einnig mun stjórn Sóta segja frá hvað félagið ætlar að gera fyrir keppendur Sóta.  Kaffiveitingar að hætti stjórnar.  Mætum öll! Kveðja/Stjórnin.

 

 

 

02.april 2010

MYNDIR FRÁ VETRARLEIKUM 2 KOMNAR Í MYNDAALBÚM

Myndir frá GR

 
30.mars 2010

KVENKYNIÐ ALLSRÁÐANDI FRÁ SÓTA

Sóti er með í annað sinn
Það verða þrjár stelpur á jafnmörgun hryssum sem munu keppa fyrir hönd Sóta á Dymbilvikusýningu Gusts annað kvöld. Það eru þær Signý á Ör Hugadóttir, Sigrún Andrésar á Birtu Leiknisdóttir og Sigrún Antons á Perlu Ilmsdóttir. Þetta verður því ekta Sóta ræktun, bæði á hestum og knöpum!  Mætum öll og hvetjum þær til dáða! 

 

28.mars 2010

DYMBILVIKUSÝNING GUSTS

Sóta hefur verið boðið að taka aftur þátt í Dymbilvikursýningu Gusts þ. 31 mars. Ef þú átt efnilegan hest eða meri úr þinni eigin ræktun sem þú vilt sýna í Gusthöllinni þá endilega hafðu samband við Snorra s: 825-0572 eða Steinunni s: 898-8903 sem allra fyrst.  Koma svo Sótafélagar!

 

 
28.mars 2010

NÝRAKAÐIR REIÐVEGIR

Sjö Sótafélagar gerðu sér lítið fyrir og rökuðu reiðveginn frá hesthúsunum og að Sóta skjóli + reiðveginn við Suðurnesveg á einungis einum og hálfum klukkutíma!  Svo nú eru reiðvegirnir steinalausir og fínir. Stefnt er á að bera fjörusand á hluta af bökkunum sem fyrst, vonandi mæta fleiri þá - þetta er jú hagur okkar allra sem ríðum út á Álftanesi.

 
27.mars 2010

SÓTAFÉLAGI Í ÖÐRU SÆTI

Arnar Ingi Lúðvíkssson og Prestur frá Kirkjubæ tóku þátt í Karlatölti Andvara í gærkvöldi.  Þeir kepptu í flokknum meira vanir og gerðu sér lítið fyrir og urðu í öðru sæti.  Skv sjónarvottum var Presturinn eini hesturinn sem komst eitthvað áfram á yfirferðartölti!  Innilega til hamingju Arnar Ingi!  (ef einhver á mynd, þá væri gaman að fá hana senda...)

 

24. mars 2010

SKILABOÐ FRÁ ÆSKULÝÐSNEFND

Unga fólkið hvatt til að þátttöku í verðlaunaafhendingu á Landsmóti í sumar!

Landsmót hestamanna sem haldið verður í Skagafirði dagana 27. júní - 4. júlí hefur óskað eftir samstarfi við æskulýðsnefndir hestamannafélaga landsins í þeim tilgangi að virkja ungmenni og unglinga við verðlaunaafhendingu á mótinu.

Mælst er til að unga fólkið skarti félagsbúningi sínum við afhendinguna og geta áhugasamir haft samband við æskulýðsnefndir hestamannafélaganna en einnig er hægt að senda póst á landsmot@landsmot.is.

Í póstinum þarf að koma fram nafn og aldur ásamt upplýsingum um hvaða hestamannafélagi viðkomandi tilheyrir.

 

23.mars 2010

VINNUDAGUR HJÁ REIÐVEGANEFND

Allir út að raka!

Reiðveganefnd boðar félagsmenn til vinnudags unnudaginn 28. mars.  Mæting er við félagshús kl. 11:00 og stefnt er á að raka steina úr reiðvegum, sérstaklega á bökkunum í ca 1-2 tíma.  Mætum öll og gerum reiðvegina okkar enn betri!  Hrífur ofl verða á staðnum.  (þeir sem ekki komast á þessum tíma, geta fengið úthlutað öðrum tíma)

 

 

 

21 mars 2010

20 MANNA HÓPUR ÚR FÁKI Í HEIMSÓKN

Áð var út í Skansi og sunginn Óli skans.....
Það er óhætt að segja að hún hafi verið fjölmenn hópreiðin á Álftanesi í gær en við fengum 22 manna hóp úr Fáki í heimsókn til okkar.  Samtals voru því 40 menn og hestar á ferð um Bessastaðanesið í blíðaskaparveðri.  Riðið var frá félagshúsi, meðfram Bökkunum og áð við Skansinn.  Þaðan var riðið um Bessastaðanesið, um hlaðið á Bessastöðum, í hringtorgið og endað aftur við félagshúsið þar sem Sóti bauð uppá heitt súkkulaði og vöfflur.  Aldeilis frábær dagur og nú eigum við bara eftir að endurtaka leikinn í úr Víðidalnum.  Skipulagning lenti að mestu hjá formanni skemmtinefndar og eru honum færðar þakkir fyrir. (myndin er stolin frá facebook en vefstjóri bíður eftir myndum)

 
15 mars 2010

2.VETRARLEIKAR - ÚRSLIT

Berglind sigraði barnaflokkinn og stendur efst að stigum
Vetrarleikar Sóta nr 2 2010 fóru fram í blíðskaparveðri síðastliðinn laugardag. Þátttaka var góð og völlurinn eins og best verður á kosið þ.e.a.s. brautin norðanmegin og fóru því leikar allir fram á beinni braut.  Þrátt fyrir misskilning þular og dómara í upphafi fór mótið vel fram og stóðu allir sig með prýði.  Dómari var Sindri úr Hafnarfirði og úrslit (og stigagjöf) urðu  þannig;  (myndir verða settar inn þegar þær berast)

 

 

 

08.mars 2010

BÍÓFERÐ!

Æskulýðsnefnd Sóta ætlar að bjóða Sótabörnum í  bíó þriðjudaginn 9. mars á myndina Alice in Wonderland í Kringlubíó sem er fjölskyldumynd og leyfð öllum aldurshópum og er sýnd kl. 17:40.

Lagt verður af stað frá Félagsheimili Sóta kl. 17:15 stundvíslega ;o)

Innifalið í miðaverði er popp og drykkur ;o).  Vonumst við til að fá sem flesta krakka með

Kveðja Æskulýðsnefnd Sóta

04.mars 2010

REIÐVEGANEFND Í RUÐNINGI

Reiðveganefnd hefur komið sér upp forláta traktor með tönn aftan á til snjómoksturs og gerði sér lítið fyrir og ruddi reiðvegina í kvöld.  Verkefnið er styrkt af Sóta og mega Álftnesingar nú fara að þakka okkur hestamönnum fyrir að geta gengið útivistarstíga Álftaness með góðu móti.  

 
04.mars 2010

HÓPFERÐ Á HESTANÁLGUN

Fræðslunefnd Sóta langar til að kanna hvort áhugi fyrir hópferð á viðburðinn "Hestanálgun" næstkomandi sunnudag (sjá www.lhhestar.is) sé fyrir hendi.  Farið yrði með rútu úr bænum, verð á farinu myndi  ráðast af fjölda (fleiri - ódýrari)og jafnvel stoppað og snætt á leiðinni.

Endilega látið vita með því að svara þessum pósti elfure@simnet.is, soti@simnet.is eða senda sms í 618-0266 ef áhugi er fyrir hendi ;O)
Bestu kv. F.h fræðslunefndar
Elfur

 
24.febrúar 2010

YOUTH CUP

Æskulýðsnefnd LH minnir áhugasama á að skila inn umsóknum á Youth Cup sem verður haldið 10.- 18. júlí nk. Mótið er haldið í Kalo í Damörku.  Útvegaðir verða hestar ef óskað er. Skilyrði fyrir þátttöku: Reynsla í hestamennsku, enskukunnátta, keppnisreynsla í íþróttakeppni, sjálfstæði, geta unnið í hóp og reglusemi.

Með umsókn þurfa að fylgja upplýsingar um reynslu í hestamennsku, mynd, keppnisárangur og upplýsingar um önnur skilyrði þátttöku.
Nánari upplýsingar fást á heimasíðu LH undir æskulýðsmál og hjá æskulýðsfulltrúum LH og félaganna.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu LH, Engjavegi 6, 104 Reykjavík fyrir 1. mars nk.

 
23.febrúar 2010

SÓTI Á FACEBOOK

Sigrún H. Andrésdóttir er nú formlega tekið við Facebook síðu Sóta.  Endilega gerist ,,vinir" Hestamannafélagsins Sóta, þar verða birtar aðrar fréttir en hér á heimasíðunni........fylgist með!  

 
23.febrúar 2010

REIÐVEGAFRÉTTIR

Búið er að bera ofan í reiðveginn við Bakkana (fyrir neðan Hólmatún) og í reiðvegaspottann við Kirkjubrú.  Kærar þakkir reiðveganefnd, þið eruð snillingar! (Álftnesingar mega líka þakka Hmf Sóta :-)

 
23.febrúar 2010

ÞORRABLÓT/GÓUGLEÐI SÓTA Á LAUGARDAGINN

Hvað er svo glatt sem góðra Sóta fundur?
Eins og þið hafið tekið eftir er þorrablót Sóta skv dagskrá félagsins næstkomandi laugardag 28.febrúar.  Það verður þó ekki haldið á Breiða  heldur í félagshúsinu okkar.

 

Staður:  Félagshús Sóta (sem skreytt verður með íslensku þema)

Stund:  Laugardagur 28 feb kl. 20:00

Þema:  Íslenskt (sem spannar allt frá vaðsmálsbrókum uppí skautbúning....lopapeysa t.d. tilvalin)  

Verð:  Íkr. 3.500.- per mann

Innifalið:  Íslenskt lambakjöt og skyrkaka í eftirrétt (ekki þorramatur)

Tekið á móti gestum:  Með íslenskum fordrykk og smakki

Tónlist:  Íslensk. Bæði af íslenskum hljómplötum og af fingrum fram

Heimatilbúin skemmtiatriði * (sjá tölvupóst)

 

Vinsamlega skráið ykkur sem allra fyrst hjá Jörundi skemmtinefndarformanni eða sendið sms í Sótasímann 618-0266 (já eða nei)

Sjáumst öll hress og kát í íslensku (ekki) kreppu stuði

ÍSLANDI ALLT..... EN SÓTA ENN MEIRA

Kveðja/ Ferða og skemmtinefnd

 

22.febrúar 2010

ENGINN KEPPANDI FRÁ SÓTA

Sóti, ekki á bikarmóti.....
Það er ljóst en enginn keppandi verður frá Sóta í næstu tveimur bikarkeppnum hestamannafélaganna.  Mótanefnd sendi út fjöldapóst og skoraði á félaga að mæta á fund í kvöld en því miður mætti enginn. Annað hvort eiga Sóta félagar enga skeiðhesta eða treysta sér ekki í keppni við meistaradeildarknapa og atvinnumenn.  Við verðum því bara að láta duga að vera skemmtilegasta félagið...amk í bili!

 

 

 

17.febrúar 2010

ÓVISSUFERÐ FRESTAÐ

Óvissuferð á hrossaræktarbú sem átti að vera á laugardaginn er frestað um óákveðin tíma vegna ónógrar þátttöku. 

 
15.febrúar 2010

FRÆÐSLUNEFND SÓTA

Fræðsunefnd Sóta vekur athygli á áhugaverðum fyrirlestri sem grannar okkar í Sörla bjóða uppá næstkomandi fimmtudag í Sörlahöllinni.

Sjá Auglýsingu hér.........   http://www.sorli.is/Frettir/1702/

 
15.febrúar 2010

FYRSTU VETRARLEIKAR SÓTA - ÚRSLIT OG STIGAGJÖF

Keppendur í barnaflokki. Berglind sigurvegari lengst t.v.
Fyrstu vetrarleikar Sóta fóru fram í grenjandi rigningu á velli félagsins á laugardaginn 13.feb.  Tvísýnt var um hvort völlurinn yrði keppnishæfur en það kom í ljós að beina brautin norðanmegin var í fínu lagi svo öll keppnin fór fram á beinni braut.  Það var greinilega einhver veðrabrigði í hrossunum því sum reyndust körg, önnur í fýlu og sum jafnvel hrekktu knapann á vellinum en mótið gekk þó stórslysalaust fyrir sig.  Verðlaunafhending var í troðfullu félagshúsi, innanum hundblauta keppendur og ótrúlega marga áhorfendur sem gæddu sér á kaffi og pylsum.  Atli Guðmundsson var dómari og úrslit urðu þannig......sjá hér....(ef virkar) . vefstjóri bíður eftir myndum

 
14.febrúar 2010

SIGRÚN OG TÓMAS KOMUST EKKI Í ÚRSLIT

Sigrún H. keppti á Völundi frá Hárlaugsstöðum
En stóðu sig samt með ágætum í bikarkeppni hestamannafélaga á föstudagskvöldið. Þau öttu kappi við meistaradeildarhesta og atvinnumenn svo litla félagið á Álftanesi má sín lítils. Við verðum bara að taka þetta á áhorfendapöllunum næst!! Meðfylgjandi mynd er tekin af www.hruni.is - því miður fannst enginn mynd af Tómasi og Móu nema bakvið annað par.  (vefstjóri bíður eftir myndum og úrslitum frá vetrarleikunum í gær......)

 

 

12.febrúar 2010

FYRSTU VETRARLEIKAR SÓTA Á MORGUN

Fyrstu vetrarleikar Sóta fara fram á velli félagsins (ef veður og vallarskilyrði leyfa) kl. 12:00 (13 feb).  Keppt verður í tölti og þrígangi á beinni braut.  Skráning er í félagshúsi frá kl. 10:30 - 11;00.  Sjá tölvupóst. Keppt er í barna, unglinga, ungmenna, karla og kvennaflokki.  Mætum öll og sýnum gæðingana!

 

12.febrúar 2010

BIKARKEPPNI HESTAMANNAFÉLAGA

Það eru  þau Sigrún Halldóra Andrésdóttir á Völundi frá Hárlaugsstöðum og Tómas Guðmundsson á Móu frá Efri-Brú sem keppa fyrir hönd Sóta í bikarkeppni hestamannafélaga í Andvarahöllinni í kvöld.  Formaður vor gerði óformlega sms könnun á hverjir myndu taka þátt í stuðningsmannaliði Sóta en svo virðist sem Álftnesingar séu óvenju uppteknir í kvöld og eiga ekki heimangengt.  En vonandi gengur betur í næstu áhorfendakeppni - koma svo Sótafélagar!  

 

09.febrúar 2010

AUGLÝST EFTIR UMSÆKJENDUM Á YOUTH CAMP

Sjá auglýsingu frá LH hér.... http://www.lhhestar.is/static/files/aeskulyds_skyrslur/bref_aeskulyds.pdf eða hér...

 

07.ferbúar 2010

BIKARKEPPNI HESTAMANNAFÉLAGANNA

Við verðum enn flottari 2010
Þeir sem hafa áhuga á að keppa fyrir hönd Sóta í bikarkeppninni eru vinsamlega beðnir um að mæta á fund á mánudagskvöldið 08.feb kl. 20:00 í félagshúsi.  Stuðningsmannaliðið er að skipuleggja glæsilega, en lágstemmda, endurkomu. Það er ekki hávaðinn sem skiptir máli heldur útlit og framkoma!

 

 

 

 

 
07.febrúar 2010

FJÖLMENN FÉLAGSREIÐ Í DAG

Mynd frá hópreið fyrr í vetur
Yfir 20 manns á öllum aldri tóku þátt í skemmtilegri félagsreið í dag en riðinn var Bessastaðahringur með viðkomu í hesthúsinu á Breiða.  Gaman var að sjá Sótafélaga úr öllum ,,hverfum" þ.e.a.s. Breiðholti, Suðurnesveg og Breiðabólsstað taka þátt og gaf elsti félaginn ekkert eftir.  Á eftir bauð ferða og skemmtinefnd uppá kaffi og heitt súkkulaði í félagshúsinu en Snorri frambjóðandi skaffaði prófkjörs-meðlæti. Því miður var engin myndavél með í för en ef einhver hefur tekið myndir á símann sinn er sá vinsamlegast beðin um að senda á soti@internet.is

 

06.febrúar 2010

VALLAR- OG MANNVIRKJANEFND HÁTT UPPI

Vallar og mannvirkjanefnd eyddi öllum deginum í dag, frá morgni og fram að eftirmiðdegi,  í litilli körfu í 10 metra hæð, og festi upp ljósakúpla á alla ljósastaurana.  Auk þess kláruðu þeir að tengja, moka ofan í skurði ofl. ofl.  Það er ekki að spyrja að dugnaðnum í þessari nefnd.  Svenni úr Víðidalnum, hafði á orði að honum fyndust Sótafélagar ekki nógu duglegir að æfa sig fyrir vetrarleikana um næstu helgi en enginn hestur sást á vellinum allann daginn...........

 
17. janúar 2010

VALLARNEFND AÐ STÖRFUM UM HELGINA

Ari og Andri voru meðal þeirra sem voru að vinna um helgina. (myndin er tekin í haust þegar staurarnir voru settir niður)

Vallar og mannvirkjanefnd hefur staðið í ströngu alla helgina við að setja niður kapal fyrir ljósastaurana við völlinn svo hægt verði að æfa sig á vellinum á jafnt nóttu sem degi.  A.m.k. 5 menn (Jói, Toni, Ottó, Ari og Andri) og 2-3 gröfur voru að störfum frá morgni til kvölds og mátti sjá sveitta vinnumenn að störfum.  Hafið kærar þakkir fyrir félagar!

 

Einnig hefur reiðveganefnd skafið og valtað reiðveginn við Kirkjubrú og nú á aðeins eftir að setja efni ofan á en það mun verða gert í vikunni.

 

 

16. janúar 2010

DAGATAL MEÐ DAGSKRÁ VETRARINS KOMIÐ ÚT

Sólarlagsmynd af Þórði prýðir júnímánuð
Hægt er að kaupa nýja Sóta dagatalið 2010 þar sem vetrardagskrá Sóta er merkt inná, hjá Ara/versluninni Lukkuskeifunni, formanni fjáröflunarnefndar á kr. 1.500.- (allur agóði rennur óskiptur til Sóta). Algjörlega nauðsynlegt í hvert hesthús (og helst að eiga annað heima líka....).  Það má finna marga nýja dagskrárliði og það lítur út fyrir mjög spennandi vetur framundan!

 

 

 

 

10.JANÚAR 2010

GÓÐ ÞÁTTTAKA Í FYRSTU FÉLAGSREIÐ VETRARINS

Jörundur bauð uppá harðfisk og ópal
Það var fín þátttaka í fyrstu félagsreiðinni þennan veturinn enda hafa Sóta félagar verið óvenju duglegir að ríða út það sem af er vetri og mikið líf verið í hverfinu.  Fólk á öllum aldri tók þátt í reiðinni en riðið var í Jónasar-rétt þar sem áð var og formaður ferða og skemmtinefndar bauð uppá harðfisk og ópal.  Á eftir bauð sá sami uppá kaffi og rúnnstykki í félagshúsi.  Vonandi er þetta það sem koma skal í vetur - mikið líf og mikið gaman!

 

 

 
10.janúar 2010

FRÆÐSLUKVÖLD HJÁ ÆSKULÝÐSNEFND SÓTA 07. JANÚAR

Nú ríða öll börn hjá Sóta út í endurskinsvestum
Æskulýðsnefnd Sóta var með fræðslufund um öryggi í hestamennskunni. Var stiklað á helstu þáttum sem þarf að gæta að öryggislega í hesta-mennskunni bæði á baki, umgengni við hestinn og aðbúnaði í og við hesthúsin. Bauð nefndin upp á Prins póló og Svala.  Vátryggingafélagið VÍS gaf krökkunum endurskinsvesti.  Þau sem mættu voru: Lóa, Berglind, Freyja, Þórunn Hvönn, Alexandra, Signý, Kjartan, Kristófer og Andrea Ýr var með okkur líka í heimsókn frá Akureyri. Af nefndarfólki voru mættar Elísabet, Eyrún og Siddý. Er það von nefndarinnar að þátttaka verði betri hjá krökkunum á komandi vetri.   Lauk fundinum um kl. 20:30. / Sigríður Birgisdóttir form. æskul. nefndar Sóta

 
01.janúar 2010

GLEÐILEGT NÝTT ÁR SÓTAFÉLAGAR NÆR OG FJÆR

Í gær, gamlársdag, var farið í óopinbera hópreið úr hesthúsahverfinu og voru reiðmenn á öllum aldri - sá yngsti aðeins 7 ára gamall.  Þrátt fyrir nokkrar sprengingar gekk ferðin að óskum og bæði menn og hestar komu ánægðir til baka, enda veðrið með eindæmum gott. Eftir reiðina var boðið uppá heitt súkkulaði og meðlæti hjá Jóa og Elísabetu.  Hér áður fyrr, n.t. á síðustu öld,  var árleg hópreið Sótafélaga til Bessastaða þar sem Forsetinn tók á móti hópnum á tröppum Bessastaða en nú er öldin víst önnur.  

 

Skv. nýjustu upplýsingum var allt með kyrrum kjörum í hesthúsahverfinu í nótt, þrátt fyrir miklar sprengingar og brennu í 150 m. fjarlægð frá hverfinu okkar.  Þó fréttist af lausum hrossum sem voru úti á norðurnesinu, hlaupandi yfir Bessastaðatjörn - þeir hafa allir náðst og eru komnir til síns heima.

(verið er að vinna að koma inn myndum frá hópreiðinni í gær)

 

30.desember 2009

ÍÞRÓTTAMAÐUR SÓTA 2009

Sigrún á Völundi frá Hárlaugsstöðum í gæðingakeppni Sóta 2009

Hestamannafélagið Sóti tilnefnir Sigrúnu Halldóru Andrésdóttur kt. 241191-2499, Skólatúni 1 sem íþróttamann Álftaness 2009.  Sigrún Halldóra tók þátt í öllum mótum hjá Sóta og var ávallt í fyrsta sæti í sínum flokki, hvort sem keppt var í gæðingakeppni, tölti, íþróttamóti eða þrígangi, þrátt fyrir að vera ekki alltaf á sama hestinum.  Hún hefur tekið miklum framförum á árinu og stundar nám í hestamennsku með skóla.  Einnig er hún farin að þreifa fyrir sér í tamningum með góðum árangri.  Hún sýnir ávallt mikinn drengskap í keppni sem leik og var stigahæsti yngri knapinn hjá Sóta í ár. Sigrún Halldóra er íþróttamaður Sóta 2009. Innilega til hamingju Sigrún!  Athöfn fer fram þ. 6 janúar í hátíðarsal íþróttahúss Álftanes og síðan á fyrstu vetrarleikum Sóta þ. 13 febrúar.

 

 

MYNDIR

Það eru komnar inn myndir frá smöluninni frá SG / GR / SB inná myndaalbúmið. Einnig er verið að vinna í að setja inn myndir frá hópreiðinni í júní.

 
20.desember 2009

NOKKRIR LAUSIR TÍMAR Í REIÐHÖLL ANDVARA

Frestur er nú útrunninn til að sækja um tíma í reiðhöllum Gusts og Andvara í vetur.  Sótafélagar fengu sendan tölvupóst þess efnis a.m.k. tvisvar en ekki hafa komið inn margar umsóknir.  Vinsamlega athugið að stjórnin hefur ákveðið að bjoða EKKI uppá tíma á mánudagskvöldum hjá Gusti heldur einungis á sunnudagsmorgnum frá kl. 11-12:00 í Andvarahöllinni frá 15 janúar - 15 april.  Tíminn mun kosta um kl. 3.000.- og geta menn tekið sig saman um hvern tíma.  Nokkrum tímum er enn óráðstafað og vill stjórn Sóta hvetja menn til að senda póst á soti@internet.is eða hringja í Steinunni formann og láta taka frá tíma.

 
20.desember 2009

SMÖLUN GEKK VEL

Það var óneitanlega fríður hópur sem kom úr nesinu í gær.
mynd GR

Að venju gekk smölun í Bessataðanesi vel fyrir sig, jafnvel of vel, því það tók ekki nema 30 minútur að koma hrossunum í réttina við Breiðumýri, þrátt fyrir að ákveðið hefði verið að smala hægt að þessu sinni. Mikil og góð mæting var í félagshúsinu kl. 13:00 en svo mikið lá á að græjurnar fyrir tónlistina sem átti að hljóma bræddu úr sér og eldurinn í tunnunum var aldrei kveiktur!  Hestunum í Bessastaðanesi lá mikið á að komast heim og mátti litlu muna að þeir hlypu framúr smölunum enda búið að elta þá uppi á tveimur stuðboltum á fjórhjólum um allt nesið. En allir komust þeir í réttina, kófsveittir í norðangarranum, og voru síðustu hestar komnir í hús um klukkutíma síðar.  Öllum smölum og aðstoðarfólki, stórum sem smáum, eru þökkuð vel unnin störf.

 

20.desember 2009

DAGSKRÁ MÓTA - OG ÆSKULÝÐSNEFNDAR TILBÚNAR

Formenn æskulýðsnefndar og mótanefndar hafa sent inn dagskrá vetrarins fyrir sínar nefndir og nú er aðeins beðið eftir nokkrum nefndum og þá verður dagskrá Sóta 2010 tilbúin og hægt að setja inn á nýja dagatalið.  Vonandi gengur að hlekkja í ......sjá æskulýðsnefnd hér.........og mótanefnd hér..........

 

15.desember 2009

BESSASTAÐANESIÐ SMALAÐ Á LAUGARDAGINN 19.DES

Allir sem eiga hross í nesinu eiga að mæta við félagshúsið kl. 13:00, þar sem fólki verður raðað á staði til að standa fyrir stóðinu.  Athugið að þessi smölun hefur verið auglýst í sveitarfélaginu svo vonandi fáum við fullt af aðstoðarfólki!  Stefnt er á að skapa skemmtilega réttarstemningu með heitu kakóki og smákökum, tónlist og opnum eldi.  Allir að mæta og upplifa Breiðumýrarréttir á aðventu! (Laufskálaréttir hvað?)

 
15 desember 2009

SÓTAVERSLUNIN LUKKUSKEIFAN HEFUR VERIÐ OPNUÐ!

Þar verða m.a. til sölu skeifur á sama verði og í hestavöruverslunum eða á kr. 1.200.- kr parið - en að auki fylgja skaflar frítt með!  Einnig verður hægt að kaupa Sóta kertastjaka, Sóta dagatal, Sóta merki á jakka og ýmislegt fleira. 

Sótafélagar, verslum í heimabyggð og styrkjum þannig félagið okkar um leið.

Nánari upplýsingar hjá formanni fjáröflunarnefndar s: 899-0999.

 

 
13 desember 2009

SÓTI MEÐ Á JÓLA-OG GÓÐGERÐARDEGI ÁLFTANESS

Formaður fjáröflunarnefndar stóð í ströngu
Fjárölfunarnefnd Sóta var tók þátt í handverksmarkaði sem haldin var í íþróttahúsi Álftaness í gær, 12.desember.  Þar var hægt að kaupa handunna kertastjaka úr skeifum, dagatal Sóta 2010, Sóta suðusúkkulaði, gjafapappír ofl.  Einnig var hægt að skrá sig í félagið og fengu þau sem skráðu sig gjafabréf uppá eina heimsókn í hesthúsin, moka, kemba og fara á bak.  Um 20 ný börn skráðu sig í félagið og salan fór fram úr björtustu vonum.   

 
 

 

 

06.desember 2009

VEL HEPPNAÐUR AÐALFUNDUR

Siddý, Andrea, Jói, Signý og Alexandra voru einstaklega smart í fötum frá Líflandi
Það var sæmileg mæting á aðalafundi Sóta 02 des en um 20 félagar mættu á fundinn. Eftir að formaður las/sýndi skýrslu stjórnar lásu nefndarformenn upp áhugaverðar skýrslur vetrarins og gjaldkeri fór yfir ársreikninga.  Það er greinilegt að mikið starf hefur verið unnið í félaginu á árinu! Síðan fór fram kosning stjórnar og í nefndir félagsins.  Skv lögum áttu 2 félagar að ganga úr stjórn en þau gáfu kost á sér áfram sem og 2 nýjir félagar og fór því fram kosning - sjá úrslit í stjórn og nefndir 2010 hér til hliðar.  Í kaffhléi sýndu 5 Sóta félagar glæsilegan tískufatnað frá Líflandi og má nú búast við að Sóti verði best klædda félagið á næsta ári.  Nokkrar umræður urðu undir liðnum önnur mál en það eru greinilega helst reiðvegar- og reiðhallarmál sem brenna á Sótafélögum.