Félagsmiðstöðvar
Í Garðabæ eru þrjár félagsmiðstöðvar. Í þeim fer fram fjölbreytt félagsstarf fyrir börn og ungmenni á grunnskólaaldri. Markmið félagsmiðstöðvanna er að veita tækifæri til samveru og til þess að stunda heilbrigðar tómstundir undir leiðsögn reyndra tómstundaleiðbeinenda.
Mikið og gott samstarf er á milli félagsmiðstöðvanna og nemendum frjálst að sækja starf í þeim öllum.