Hvatningarsjóður fyrir unga hönnuði og listamenn í Garðabæ

Ungir hönnuðir og listamenn í Garðabæ á aldrinum 15-25 ára geta sótt um styrk í Hvatningarsjóð fyrir unga hönnuði og listamenn. Einstaklingar og hópar geta sótt um styrk til hvers kyns listviðburða eða verkefna sem fara fram á árinu og næsta ári. 

Tekið verður sérstaklega tillit til verkefna/viðburða sem fara fram í Garðabæ og eru til þess fallnir að efla menningarlíf bæjarins. Styrkur er ekki ætlaður til náms eða námskeiða. 

Reglur um Hvatningarsjóð fyrir unga hönnuði og listamenn í Garðabæ

1. gr.

Í samræmi við fjárhagsáætlun Garðabæjar hverju sinni skal árlega veita styrki til ungra hönnuða og listamanna í Garðabæ til að efla þá og hvetja til frekari sköpunar. Menningar- og safnanefnd Garðabæjar skal úthluta styrkjunum við sérstaka athöfn.

2. gr.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum um styrkina. Auglýst skal eftir umsóknum á vorönn. Hægt er að sækja um styrk á þar til gerðu umsóknareyðublaði.

3. gr.

Einstaklingar og hópar geta sótt um styrk í hvatningarsjóðinn til hvers kyns viðburða eða verkefna á þessu ári og næsta ári. Styrkur er ekki ætlaður til náms. Tekið verður sérstaklega tillit til verkefna/viðburða sem fara fram í Garðabæ og eru til þess fallnir að efla menningarlíf bæjarins. Á umsóknareyðublaði verður nánari útlistun á hvaða gögn þurfa að fylgja með umsóknum s.s. meðmæli, kostnaðaráætlun o.fl. Þá skal styrkþegi tilkynna menningarfulltrúa um breytingar á kostnaðar- og tímaáætlun ef við á og skila inn greinargerð um verkefnið að verkefninu loknu.

4. gr.

Þeir einstaklingar koma til greina við úthlutun styrkja sem hafa fasta búsetu (lögheimili) í Garðabæ og eru á aldrinum 15-25 ára. Hópar sem fá styrk verða að vera samansettir af einstaklingum þar sem meirihluti hefur fasta búsetu í Garðabæ. Heimilt er að víkja frá þessum viðmiðum í undantekningartilfellum. Menningar- og safnanefnd getur einnig úthlutað styrkjum til einstaklinga eða hópa án þess að viðkomandi hafi sótt um styrk.

5. gr.

Heildarupphæð styrkja miðast við fjárhagsáætlun hverju sinni. Menningar- og safnanefnd ákveður fjölda styrkja og upphæðir miðað við fyrirliggjandi umsóknir hverju sinni. Menningar- og safnanefnd ákveður úthlutun úr hvatningarsjóðnum. Menningarfulltrúi Garðabæjar ásamt ungmennaráði Garðabæjar fer yfir umsóknir og veitir menningar- og safnanefnd umsögn um þær.

6. gr.

Reglur þessar skulu endurskoðaðar árlega.

Reglur þessar voru samþykktar á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 3. mars 2022.