Dagforeldrar

Dagforeldrar annast gæslu barna í heimahúsum. Starfstími er virka daga og er dvalartími barna mismunandi en aldrei lengri en 9 tímar í senn. 
Til að sækja um að gerast dagforeldri þarf að sækja um hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.  Hér má sjá nánari upplýsingar á vef Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. 

Listi yfir starfandi dagforeldra í Garðabæ.

Garðabær greiðir niður gæslu barna úr Garðabæ frá 10 mánaða aldri hjá dagforeldri. Markmiðið er að gera vistun hjá dagforeldri að raunverulegum valkosti fyrir foreldra ungra barna með því að kostnaður við hana sé sá sami og við leikskóladvöl.

Dagforeldrar eiga rétt á greiðslu til að bæta aðstöðu á heimilum sínum með tilliti til þarfa og öryggis þeirra barna sem þeir vista.

Reglur um aðstöðugreiðslur til dagforeldra (pdf-skjal)

Reglur um greiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum  

Eyðublöð vegna vistunar barna hjá dagforeldrum

Systkinaafsláttur

Ef fleiri en eitt barn eru í dvöl á leikskóla, í tómstundaheimili eða hjá dagforeldrum eiga foreldrar rétt á systkinaafslætti fyrir eldra/elsta barnið. 

Upplýsingar um systkinaafslátt.

Umsóknareyðublað um systkinaafslátt er á Mínum Garðabæ.

Viltu skapa þér atvinnu?

Upplýsingar um starf sem dagforeldri.