Viðburðir

Barnamenningarhátíð: Dr. Bæk 27.4.2024 11:00 - 13:00 Garðatorg - miðbær

Ástandsskoðun og þrautabraut frá Dr. Bæk

 

Barnamenningarhátíð: Forsetinn minn 27.4.2024 11:00 - 15:00 Bókasafn Garðabæjar

Sýningin Forsetinn minn verður á Bókasafni Garðabæjar en það eru 5 ára nemendur Sjálandsskóla og Barnaskóla Hjallastefnunnar sem hafa unnið sýninguna.

 

Barnamenningarhátíð: Draugafræðsla 27.4.2024 12:00 Bókasafn Garðabæjar

Hræðilegar, áhugaverðar og fyndnar draugasögur. 

Klukkan 12 hefst Draugafræðsla á Bókasafninu með Björk Bjarnadóttur þjóðfræðingi sem segir hræðilegar, áhugaverðar og fyndnar draugasögur og allir þátttakendur fá afhentan galdrastafinn Salómons innsigli sem er sterk vörn gegn draugum. Allir ættu því að vera öryggir eftir þessa æsispennandi fræðslu.

 

Barnamenningarhátíð: Eldblómahaf 27.4.2024 12:00 - 17:00 Hönnunarsafn Íslands

Sýningin Eldblómahaf í Hönnunarsafni Íslands. Allir nemendur í 4. bekk í grunnskólum Garðabæjar eiga veg og vanda að sýningunni sem unnin er í smiðjum með danshöfundinum Siggu Soffíu og hönnuðinum Siggu Sunnu.

 

Barnamenningarhátíð: Eldblóm x Þykjó 27.4.2024 13:00 - 15:00 Hönnunarsafn Íslands

Eldblómasmiðja í Hönnunarsafninu þar sem Þykó eldblóm verða til úr ullargarni, silkipappír og allskonar fjölbreyttum efniviði. 

Lesa meira
 

Barnamenningarhátíð: Kíkjum inn í fortíðina 27.4.2024 14:00 Minjagarðurinn Hofsstöðum

Í Minjagarðinum á Hofsstöðum gefst fjölskyldum færi á að skyggnast inn í fortíðina með Dagrúnu Ósk þjóðfræðingi sem leiðir pælingar um lífið í landnámsbænum sem stóð á Hofsstöðum. 

 

Barnamenningarhátíð: DANSPARTÝ 27.4.2024 15:00 Garðatorg - miðbær

Dansað um heiminn!
Komdu og dansaðu með Friðriki Agna og Önnu Claessen á Garðatorgi!

 

Urriðaholtsskóli- Fjölskyldustund í bókamerkjagerð 4.5.2024 12:00 - 14:00 Urriðaholtsskóli

Fjölskyldustund fyrsta laugardag í mánuði á vegum Bókasafns Garðabæjar. Verið velkomin á notalega stund þar sem við föndrum saman skemmtileg og skrautleg bókamerki. Laugardaginn 4.maí á milli klukkan 12 og 14.

Lesa meira
 

Fimmtudagsfjörið í Urriðaholtsskóla 16.5.2024 16:00 - 18:00 Urriðaholtsskóli

Þriðja fimmtudag í mánuði á vegum Bókasafns Garðabæjar

Lesa meira
 

Fimmtudagsfjörið í Urriðaholtsskóla 20.6.2024 16:00 - 18:00 Urriðaholtsskóli

Þriðja fimmtudag í mánuði á vegum Bókasafns Garðabæjar

Lesa meira