15. ágú. 2023

Framkvæmdir á göngubrú og göngustíg

Veitur eru að leggja lokahönd á viðgerð á hitaveitulögn í í nágrenni Fitjahverfis í Garðabæ sem hefur gengið vel.

Veitur eru að leggja lokahönd á viðgerð á hitaveitulögn í í nágrenni Fitjahverfis í Garaðbæ sem hefur gengið vel.

Í vikunni varð óhapp hjá einum verktaka Veitna þegar göngubrú á stíg skemmdist. Um er að ræða stíg sem liggur fyrir neðan ærslabelginn í Fitjahverfi. Brúin verður lagfærð eins fljótt og auðið er.

Á næstunni má búast við að fyllt verði í skurði og holur á svæðinu. Þá tekur við endanlegur frágangur á yfirborði, þ.m.t. á malbiki göngustígs. Að framkvæmdum loknum verður því búið að laga stokka og stíg og koma fyrir nýrri göngubrú.