Garðabær keppir í Útsvari
Garðabær keppir við Hornafjörð í fyrstu umferð spurningaþáttarins Útsvars á RÚV föstudagskvöldið 25. nóvember kl. 20. Áhorfendur eru velkomnir í sjónvarpssal.
Spurningaþátturinn Útsvar er nú tíunda veturinn á föstudagskvöldum í sjónvarpinu. Eins og síðastliðin ár eru það sveitarfélög alls staðar af landinu sem etja kappi í sjónvarpssal RÚV. Umsjónarmenn þáttarins eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir
Garðabær keppir í fyrstu umferð gegn Hornafirði föstudagskvöldið 25. nóvember kl. 20. Áhorfendur eru velkomnir til að fylgjast með viðureigninni í beinni útsendingu úr sjónvarpssal í Efstaleiti. Húsið opnar um klukkutíma fyrir útsendingu og gestir geta skoðað sýninguna RÚV í 50 ár í biðsalnum áður en útsending hefst.
Í liði Garðabæjar eru :
Aldís Hilmarsdóttir
Huginn Freyr Þorsteinsson
Steinn Hildar Þorsteinsson
Áfram Garðabær!