Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Vörðugata 2

24.5.2022

Vörðugata 2, tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4

Í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr.41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir Garðabær hér með eftirfarandi breytingartillögu á deiliskipulagsáætlunum.

Vörðugata 2, tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4.

Tillagan gerir ráð fyrir að byggingarreitur bílgeymslu stækki og bílastæðum fjölgi en gestastæðum á lóð fækki. Kjallari bætist við undir húsið. Byggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt.

Vörðugata 2 - deiliskipulagsbreyting

Tillagan er aðgengileg hér á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í þjónustuveri.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 05.07.2022 annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.